Jáhh ekki hef ég alveg verið að standa mig hér í bloggheimum. Djöfulsins leti og ræfilsskapur er þetta
Helgin að nálgast, krakkarnir fara í fyrsta skiptið yfir heila helgi til pabba síns, og munu vonandi hafa gaman af Sjálf ætla ég að liggja í leti, glápa á stelpumyndir, kíkja í eins og tvær heimsóknir á skagann sem ég er búin að lofa mér í (aldrei að vita nema sú þriðja bætist bara við ). Ég sem rata ekkert nema í eina götu þarna á Skaganum og þykist ætla að finna tvær til viðbótar
Skelli kannski einhverju inn á morgun eftir vinnu ef einhver öflugri heilastarfsemi verður í gangi.... Díll?
Athugasemdir
Góða skemmtun á Skaganum (þetta var næstum því ljóðrænt)
Jóna Á. Gísladóttir, 26.7.2007 kl. 23:37
Mér finnst að þú eigir að koma með mér í göngu um helgina
Soffia (IP-tala skráð) 27.7.2007 kl. 13:59
Soffía... mér finnst að það eigi að vera bannað að reyna að draga mig í einhverja heilsusamlega hreyfingu á svona ókristilegum tíma að helgi til... já sem og alla aðra daga
Sólrún, 27.7.2007 kl. 20:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.