Hehe ég er algjör sucker fyrir rómantík. Er samt ekki sú allra rómantískasta sjálf Það kemur nú kannski einn daginn ef ég kynnist mr right guy (ef hann er þá til haha). En Ég hef alltaf haft svolítið gaman af eftirfarandi "ráðum" því að ég sé nú ekki hinn týpíska karlmann fyrir mér farandi eftir þessum ráðum. Kannski að þeir myndu notfæra sér eitt og eitt atriði. En varla öll
10 Rómantísk ráð
Gefðu ástinni 12 rósir. Ellefu rauðar og eina hvíta. Láttu kort
fylgja með sem á stendur: Með þessum rósum munt þú sjá að
það er aðeins ein sem stendur upp úr ...og það ert þú.
Taktu sjónvarpið úr sambandi og settu miða á skjáinn sem á stendur: Kveiktu frekar á mér í kvöld ástin mín.
Skrifaðu fallegt ástarbréf og sendu það í pósti. Skrifaðu miða með sem á stendur t.d. "Ég elska þig". Klipptu það niður í pússluspil fyrir makann til að raða saman.
Klipptu stjörnuspá makans úr blaði dagsins. Skrifaðu miða sem á stendur "Ég ætla að sjá til þess að stjörnuspáin þín rætist í dag" Þú getur afhent miðann t.d. áður en þú ferð í vinnuna.
Settu smáuglýsingu í Fréttablaðið sem aðeins þið skiljið. T.d. afmæliskveðja eða merkan dag í sambandinu. Segðu makanum síðan að kíkja á dálkinn í blaðinu.
Bjóddu makanum út að borða. Bittu fyrir augun og keyrðu um þannig að áfangastaðurinn verður óvænt ánægja.
Stjanaðu við makann og láttu renna í baðið. Notaðu næga freyðisápu. Skrifaðu fallega ástarjátningu á miða og settu miðann í flösku með korktappa. Settu flöskuna síðan í baðið. Einnig er sniðugt að skrifa í leiðinni "Ég elska þig" á baðherbergisspegilinn með sápu.
Taktu rafmagnið af íbúðinni. Láttu slóð af logandi kertum liggja inn í svefnherbergið. Vertu tilbúin í svefnherberginu þegar makinn kemur
Athugasemdir
Úff...ætla bara rétt að vona að konan lesi þetta ekki :p
Óskar, 30.7.2007 kl. 09:19
Hehe Óskar, pósta þessu hið snarasta á konuna, nú fara kröfurnar um rómance að hrúgast inn
Haha Lísa ég held ég sé bara sammála þér
yrði skíthrædd og myndi eflaust forða mér hið snarasta.
Arna.. já sumt af þessu er nú kannski bara pínu sætt thíhí, efast samt um að ég myndi nokkurntíman prófa eitthvað af þessu. Samt aldrei að vita ef ég verð CRAZY in love
Sólrún, 30.7.2007 kl. 17:21
Hmm...ætlar þú að senda þetta á konuna til að losa hana við mig ? What kind of sister are you ??
Óskar, 30.7.2007 kl. 22:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.