Átti hreint og beint yndislega helgi með börnunum í bústað. Held ég hafi ekki sofið eins mikið í ár og öld og já við bara nutum þess að vera á kósí náttbuxum, kúra yfir dvd, spila, teikna, fara í pottinn svo eitthvað sé nefnt. Komum endurnærð og fersk til baka. Síminn var stilltur á hljóðlaust um helgina og ekki mikið gert af því að líta á hann.
Nú er að fara að kíkja almennilega á íbúðarmálin, koma þeim málum á hreint fyrir fullt og allt. Nýtt upphaf...... kominn tími til.
Stutt eftir af árinu og vonandi verður allt komið á hreint áður en því lýkur.
Athugasemdir
Það hefur verið aldeilis notarlegt hjá ykkur fjölskyldunni um helgina og nú komið þið hress og endurnærð inn í vikuna
Katrín Ósk Adamsdóttir, 11.11.2007 kl. 21:37
já heldur betur
Sólrún, 11.11.2007 kl. 22:04
það er svoooo gott að fá svona helgi öðru hverju. Gangi þér vel með íbúðarmálin.
Jóna Á. Gísladóttir, 11.11.2007 kl. 23:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.