Þá er komið að því!!! Hin langþráða bústaðarhelgi mér er sama hvernig veðrið verður... ætla sko að njóta þess að slaka á og hanga í pottinum sama hvernig viðrar.... og ef ég þarf... þá moka ég mér leiðina austur fyrir fjall.... svo ákveðnar erum við vinkonurnar að fara og eiga kósí helgi barnlausar!! Er í fríi frá vinnu á morgun og fyrrpartur dags verður nýttur í að versla inn fyrir helgina og svo um miðjan dag ætlum við að rúlla af stað... og slökkva á símunum þegar á staðinn er komið.... þar sem við skutlumst með börnin hennar Stellu í pössun í leiðinni... þá þarf Gilsi kall að burra sér einn... iss hann er ekkert ósáttur við það þar sem hann getur tjúnað háværu tónlistina sína í botn og gargað með.... öss eitthvað sem mín gömlu eyru þola ekki hehe...
Þeir sem vilja kíkja í pottinn .....velkomnir hehe.... svo er alltaf hægt að skella sér út í snjókast eða eitthvað álíka skemmtilegt
Eigið góða helgi... njótið þess að vera til... KNÚÚÚÚSS
Athugasemdir
Alltaf gaman að finna gamla kunningja á blogginu... skemmtu þér súper vel um helgina!
kveðja að norðan, Lena
Rannveig Lena Gísladóttir, 8.2.2008 kl. 10:34
Ég ætla að vona að þú hafir ekki farið að álpast útí þetta veður Eigðu góða helgi Sólrún mín,hvort sem er í bústaðnum eða holtinu Smjúttss á þig elskan
Katrín Ósk Adamsdóttir, 8.2.2008 kl. 20:02
og hvernig var svo í bústaðnum? Vona að þið skvísurnar hafið ekki eytt helginni veðurtepptar í einhverjum sæluhúsi
Jóna Á. Gísladóttir, 10.2.2008 kl. 01:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.