úr einu í annað... og öðru í hitt...

Úhh það er komið helgarfrí!!Grin Plan helgarinnar er bíó í kvöld með Gilsa og svo árshátíð annaðkvöld.  Gilsi búinn að vera veikur síðustu daga og ég e-ð slöpp núna (skrifa það samt á ofnæmi).

Annars fer allt að koma í ljós varðandi íbúðarmálin, ræðst allt í næstu viku, hvort ég kaup hlut míns fyrrverandi eða hvort íbúðin verði seld.  Er svolítið á báðum áttum eins og er.  Vil vera hér, en svo á hinn bóginn þá gæti ég losað mig við allar skuldir ef ég sel.  En þá kemur náttúrulega að öpru. Leiguverð er alveg brjálæðislega hátt.. úff æji brýt heilann betur næstu daga.

En jæja bíó... held ég sé búin að setja persónulegt met í bíóferðum síðasta einn og hálfan mánuðinn..

Eigið góða helgi elskurnar *koss*knús*


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband